Draumabíllinn
Þú finnur draumabílinn og við finnum fjármögnun sem hentar þér.
Umsókn
Þú getur sótt um hjá bílasala eða bílaumboði.
Greiðslumat
Þú þarft að fara í rafrænt greiðslumat ef lánsupphæðin er yfir 2,8 milljónir fyrir einstakling eða 5,650 milljónir fyrir sambúðarfólk.
Samþykkt
Núna er bara að undirrita lánaskjölin rafrænt eða hjá bílasala/-umboði.
Eigendaskipti
Bílasali sér um að útbúa afsal og eigendaskipti og skilar til Samgöngustofu.
Til hamingju
Þú keyrir heim á nýja bílnum.
Hver er munurinn á bílaláni og bílasamningi?
Í báðum tilfellum velur þú bílinn en helsti munurinn snýr að eignarhaldi á meðan á láns- eða samningstíma stendur. Ef um bílalán að ræða er Ergo með fyrsta veðrétt í bílnum á lánstímanum og þú ert skráður eigandi. Veðinu er svo aflétt við uppgreiðslu láns. Ef um bílasamning er að ræða er Ergo skráður eigandi bílsins á samningstímanum og þú ert umráðamaður og skattalegur eigandi. Við uppgreiðslu samnings eru gerð eigendaskipti, þú verður skráður eigandi í stað Ergo.
Í báðum tilfellum berð þú ábyrgð á að vátryggja ökutækið, standa skil á sköttum og gjöldum sem og sjá um viðhald og annan rekstrarkostnað.
Í báðum tilfellum berð þú ábyrgð á að vátryggja ökutækið, standa skil á sköttum og gjöldum sem og sjá um viðhald og annan rekstrarkostnað.
Hvað má bíllinn vera gamall?
Hámarksaldur bíls er 10 ár. Aldur bíls + lánstími má ekki vera lengri en 11 ár.
Hvað með tryggingar, þarf alltaf að kaskótryggja?
Bílar á bílasamningi og bílaláni þurfa að vera ábyrgðar- og kaskótryggðir en þér er heimilt að tryggja bílinn hjá því tryggingafélagi sem þú kýst.
Áhugavert
Flestir nýir bílar eru hvítir og
gráir næst kemur rauður og svartur
Gulir og bleikireru óvinsælastir
gráir næst kemur rauður og svartur
Gulir og bleikireru óvinsælastir