Við vinnum með ykkur á krefjandi tímum
Sá faraldur sem nú herjar á þjóðina mun hafa töluverð áhrif á margra, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Ergo mun aðstoða þá viðskiptavini sem verða fyrir áhrifum í þessum aðstæðum t.d. með því að bjóða frestun á afborgunum lána, eftir því sem mögulegt er.
Úrlausnir sem Ergo býður upp á felast m.a. í tímabundinni frestun afborgana og vaxta af lánum í allt að sex mánuði. Úrræði gagnvart fyrirtækjum taka mið af Samkomulagi um tímabundna frestun greiðslna vegna heimsfaraldurs Covid-19 sem aðilar á lánamarkaði hafa gert með sér. Frestaðar greiðslur leggjast við höfuðstól og lengist samningstími/lánstími sem nemur fjölda frestaðra afborgana.
Meðal skilyrða fyrir frestuninni er að fyrirtæki hafi verið í heilbrigðum rekstri áður en áhrifa veirunnar fór að gæta og þau hafi ekki verið í vanskilum við bankann lengur en í 60 daga í lok febrúar s.l.
Í ofangreindu samkomulagi, sem nær til rekstrarfyrirtækja sem selja vöru og þjónustu, er sett það skilyrði að fyrirtæki hafi nýtt sér viðeigandi úrræði stjórnvalda vegna heimsfaraldursins.
Við biðjum einstaklinga um að senda tölvupóst á ergo@ergo.is eða leita til sinna tengiliða hjá Ergo varðandi úrræði og aðstoð.
Við biðjum fyrirtæki/lögaðila um að snúa sér til síns aðalviðskiptabanka og sækja um úrræðið þar, sem er í samræmi við Samkomulag um tímabundna frestun greiðslna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Aðalviðskiptabankinn leggur mat á það hvort umsækjandi uppfylli viðmið samkomulagsins og tilkynnir öðrum lánveitendum ef svo er. Í framhaldi af slíkri tilkynningu kemur Ergo til með að vera í sambandi við fyrirtæki/lögaðila.
Spurt og svarað um úrræði vegna greiðsluvanda
Hvaða úrræði standa einstaklingum í greiðsluvanda til boða ?
Þeim viðskiptavinum sem sjá fram á greiðsluerfiðleika vegna Covid-19, s.s. vegna atvinnumissis, tekjuskerðingar eða veikinda stendur til boða greiðslufrestur á lánum. Miða skal við að greiðslufrestur sé 6 mánuðir.
Boðið er upp á þrjár leiðir:
- Fastar greiðslur, þá eru mánaðarlegar greiðslur lækkaðar í fasta fjárhæð á tímabilinu sem fresturinn tekur til.
- Frestun afborgana (vaxtagjalddagar), þá eru eingöngu greiddir vextir á tímabilinu sem fresturinn tekur til.
- Frestun afborgana og vaxta (frysting), þá eru hvorki greiddar afborganir né vextir á tímabilinu sem fresturinn tekur til.
Hvernig mun mánaðarleg afborgun breytast eftir að greiðslufresti lýkur ?
Er hægt að greiða inn á samning/lán á meðan á greiðslufresti stendur ?
Eiga úrræði sem er að finna í aðgerðarpakka stjórnvalda við fyrirtækið mitt?
Hvaða skilyrði þurfa fyrirtæki að uppfylla?
Býður Ergo fyrirtækjum önnur úrræði en algjöra frystingu greiðslna?
Boðið er upp á tvær aðrar leiðir:
- Fastar greiðslur, þá eru mánaðarlegar greiðslur lækkaðar í fasta fjárhæð á tímabilinu sem fresturinn tekur til.
- Frestun afborgana (vaxtagjalddagar), þá eru eingöngu greiddir vextir á tímabilinu sem fresturinn tekur til.
Hvar sæki ég um úrræði ?
Við biðjum viðskiptavini um að senda tölvupóst á ergo@ergo.is eða leita til sinna tengiliða hjá Ergo varðandi úrræði og aðstoð.
Hversu langur er fresturinn?
Hver er kostnaður við að fresta greiðslum ?
Einstaklingar greiða ekki fyrir skilmálabreytingar vegna Covid-19, aðeins er innheimtur útlagður kostnaður, s.s. gjald vegna þinglýsingar og veðbandayfirlits ef við á. Fyrirtæki greiða kr. 10.000 fyrir skilmálabreytingu vegna Covid-19. Sjá nánar í verðskrá Ergo.