Áfram opið en dyrunum lokað

Í framhaldi af upplýsingafundi almannavarna 6. október hefur verið tekin ákvörðun um að móttaka Ergo verði lokuð næstu daga. Það verður áfram hægt að skila inn gögnum, en við útibú Íslandsbanka í Norðurturni verður kassi merktur Ergo og Íslandsbanka. Þar má skilja eftir lánagögn og önnur gögn sem eiga að berast til okkar.
Við erum á vaktinni eins og áður og hvetjum ykkur til að vera í sambandi með tölvupósti eða hringja í síma 440-4400 ef einhverjar spurningar vakna.

Við vonum að þið sýnið þessu skilning og biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.