Lægri eldsneytiskostnaður, frítt í stæði og engin lántökugjöld
04.04.2012
Meira en fimmtíu gerðir af nýjum bílum eru svo sparneytnir og umhverfisvænir að þeir fá frítt í stæði í Reykjavík og eru án lántökugjalda hjá Ergo. Þessir bílar bera einnig lægri vörugjöld en eyðslufrekari bílar og eru því hagkvæmustu kaupin í dag.
Heildaryfirlit eyðslugrennstu, umhverfisvænstu og hagkvæmustu kosta í bílainnkaupum, ásamt reiknivélum til að sjá heildarkostnað af rekstri bílsins fram í tímann er nú komið saman á einum stað í fyrsta sinn á Íslandi á ergo.is.
Hækkandi eldsneytisverð, alþjóðleg efnahagskreppa og aukin umhverfisvitund hefur á örfáum árum leitt til gríðarlega hraðrar tækniþróunar bílaframleiðenda sem hefur skilað sér í eyðslugrennri farartækjum til almennings en nokkru sinni fyrr í mannkynssögunni.
Þess vegna hefur Ergo tekið saman úrval bíla frá öllum bílaumboðum á Íslandi sem geta bókstaflega sparað fólki peninga miðað við margar eldri gerðir. Kynntu þér hvað nýjasta tækni í bílaframleiðslu getur sparað þér. Skoðaðu innkaupsverð, rekstrarkostnað, útlit og gæði og taktu upplýsta ákvörðun.
