Aðgangur að stöðuupplýsingum
09.02.2012
Lykilorð viðskiptavina Ergo voru send í netbanka þann 3. febrúar 2012. Lykilorðið veitir hverjum og einum aðgang að upplýsingum um skuldbindingar þeirra við Ergo, á vef okkar, t.d. áramótastöðu. Viðskiptavinir þurfa einnig að gefa upp lykilorð þegar þeir óska eftir upplýsingum um skuldbindingar sínar símleiðis og/eða í gegnum tölvupóst.
Lykilorðið er annað hvort að finna í „Netyfirlit“ hjá Íslandsbanka eða „Rafræn skjöl“ hjá Arion, Landsbankanum og MP banka. Ef þú finnur ekki lykilorðið þar þá ertu vinsamlegast beðin(n) um að setja þig í samband við viðskiptabanka þinn og fá nánari útskýringar. Ef viðskiptavinir eru ekki með netbanka er hægt að senda tölvupóst á ergo@ergo.is eða hringja í 440-4400 og við sendum lykilorðið með almennum pósti.
Viðskiptavinir Ergo sem tóku samninga eða lán eftir 1. janúar 2012 hafa ekki fengið send lykilorð en geta séð lykilorð sín á greiðsluseðlum.
