Græn bílalán án lántökugjalda út júní
05.01.2012
Í ljósi þess hve frábærar viðtökur græn bílalán Ergo hafa fengið hefur verið ákveðið að framlengja tilboð okkar um græn bílalán án lántökugjalda út júní mánuð 2012.
Græn lán standa til boða við kaup á öllum bifreiðum, nýjum sem gömlum, í útblástursflokkum A, B og C. Þetta eru þeir bílar sem losa 0-120 g CO2 á hvern ekinn kílómetra.
Í reiknivélum okkar er hægt er að reikna hversu miklu bíllinn þinn eyðir í bensín og hversu mikið hann mengar. Einnig er hægt að sjá ýmislegt annað í þessum reiknivélum s.s. samanburð á eyðslu, útblæstri og fleira forvitnilegt milli bíltegunda.
