Kröfufjármögnun Íslandsbanka verður Ergo faktoring
19.12.2011
Nú hefur kröfufjármögnun Íslandsbanka færst af Kirkjusandi yfir til Ergo á Suðurlandsbraut og heitir nú Ergo faktoring.
Kröfufjármögnun, eða „factoring" á ensku felst í því að Ergo fjármagnar viðskiptakröfur viðskiptavina sinna og innheimtir svo á hefðbundinn hátt hjá greiðanda. Kröfufjármögnun nýtist fjölmörgum fyrirtækjum sem vilja stýra greiðsluflæði viðskiptakrafna sinna og úthýsa um leið innheimtu þeirra til þriðja aðila.
Nýlega var skrifað undir kaup á nýjum hugbúnaði sem mun gera Ergo faktoring kleift að fjármagna bæði innlendar og erlendar kröfur auk þess sem kerfið býður upp á fleiri möguleika á nýjum þjónustuþáttum sem skoðaðir verða síðar.
Ása Magnúsdóttir forstöðumaður sem stýrt hefur þessari þjónustu Íslandsbanka er nú hluti af stjórnendateymi Ergo og mun leiða Ergo faktoring.
Ergo býður Ásu Magnúsdóttur og Margréti Þorsteinsdóttur velkomnar í hópinn í ný og glæsileg húsakynni að Suðurlandsbraut 14.
