Spurt og svarað um dóm Hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga

Algengar spurningar og svör um dóm Hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga.

Samningar sem eru gengistryggðir að öllu leyti eða að hluta verða endurreiknaðir með sama hætti og aðrir samningar sem hafa verið endurreiknaðir (bílasamningar og kaupleigusamningar). Gefinn verður út nýr samningur sem þarf að undirrita. Gerðir verða nýir skilmálar og samningsgögn fyrir fjármögnunarleigu sem samræmast dómi Hæstaréttar sem kemur í stað fyrra samningsforms.

Dómurinn hefur áhrif á þá samninga að því leiti að undirrita þarf nýja samningsskilmála sem samræmast dómi Hæstaréttar.

Íslandsbanki hefur áður lýst því yfir að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra samninga hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum leiði niðurstaða Hæstaréttar til hagfelldari niðurstöðu. Þeir samningar sem voru greiddir upp eftir 14.10.2008 koma til endurútreiknings.

Við hvetjum viðskiptavini til að halda áfram að greiða þá reikninga sem hafa verið gefnir út til þessa. Að sjálfsögðu verður tekið tillit til þeirra greiðslna við útreikning á eftirstöðvum skuldarinnar.

Það verða áfram gefnir út greiðsluseðlar á samningum sem eru að öllu leyti í íslenskum krónum (verðtryggt eða óverðtryggt) en það verður stöðvuð útgáfa á reikningum vegna samninga sem eru gengistryggðir að öllu leyti eða að hluta til. Hins vegar getur viðskiptavinur óskað eftir því að fá greiðsluseðla áfram útgefna þar til endurútreikningur getur farið fram. Þeir sem óska eftir því geta haft samband við ráðgjafa Ergo eða sent beiðni á netfangið innheimta@ergo.is.

Nei ekki að svo stöddu. Nú er í gangi vinna við að endurgera fjármögnunarleiguformið þannig að það samræmist dómi Hæstaréttar. Ekki liggur fyrir hvenær það verður tilbúið.

Miðað við fyrstu viðbrögð frá ríkisskattstjóra þá lítur út fyrir að ekki verði gerðar athugasemdir við útgáfu leigureikninga með virðisaukaskatti og sé framteljanda heimilt að nýta sér hann í samræmi við lög um virðisaukaskatt sé hann í virðisaukaskattsskyldri starfssemi. Ekki er talin þörf á því að taka upp fyrri virðisaukaskattsskil. Ríkisskattstjóri hefur hins vegar ekki gefið út formlegt svar ennþá varðandi þessi atriði.

Íslandsbanki gefur sér þrjá mánuði til að vinna endurútreikninga frá þeim tíma sem formlegt svar frá ríkisskattstjóra liggur fyrir. Endurútreikningi verður svo skipt upp í þrjá áfanga:

  • Fyrsti áfangi: Þar sem sami aðili hefur alltaf verið aðili að samningnum og er enn að greiða af honum.
  • Annar áfangi: Uppgreiddir samningar.
  • Þriðji áfangi: Yfirteknir samningar

Ef viðskiptavinur hefur ofgreitt á samningstíma verður leigugrunnur lækkaður um þá fjárhæð. Ef samningur næst að klárast við þessa lækkun munu eftirstöðvar ofgreiðslu verða greiddar inná bankareikning viðkomandi viðskiptavinar sé hann ekki með aðrar gjaldfallnar kröfur vegna annarra samninga við Ergo.

Já, það verður gerður nýr samningur um eftirstöðvar. Sá hluti samningsins sem var áður gengistryggður verður í óverðtryggðum íslenskum krónum.

Viðskiptavinur getur valið um það hvort hann vilji halda inni þeim lengingum sem samþykktar hafa verið á samningstímanum, ef um slíkt er að ræða. Annars gildir upprunalegur samningstími. Kjósi viðskiptavinur að stytta samningstímann hefur hann möguleika á því.

Þeir samningar verða einnig endurreiknaðir.

Breytingin verður viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Verið er að vinna í nýjum samningsskilmálum í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 20.10.2011.

Já það er hægt. Samningurinn verður svo endurreiknaður með sama hætti og aðrir uppgerðir samningar.



Quick Navigation


Search



Second Navigation