Atvinnuhúsnæði

Láttu Ergo um að kaupa húsnæðið

Ergo kaupir það húsnæði sem þú hefur augastað á og leigir þér í umsaminn tíma. Að samningstíma loknum eignast þú húsnæðið með lokagreiðslu og færð afsalið í þínar hendur.

Helstu kostir kaupleigu fyrir atvinnuhúsnæði

  • Bindur ekki rekstrarfé
  • Staðgreiðslukjör tryggja lægri leigugreiðslur
  • Allt að 70% fjármögnun
  • Samið er til allt að 15 ára
  • Engin stimpilgjöld eru af kaupleigusamningi
  • Leigutaki eignfærir og afskrifar húsnæðið

Hentugur kostur fyrir stærri fjárfestingar

Einn helsti kosturinn við kaupleigu, líkt og aðra eignaleigu, er að hún bindur ekki dýrmætt rekstrarfé. Með endurfjármögnun húsnæðis má bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins og auðvelda þannig fjárhagslega endurskipulagningu.

Með því að láta Ergo kaupa húsnæðið fást auk þess staðgreiðslukjör. Kaupleiga hentar best þegar ekki er um skattskyldan rekstur að ræða.



Quick Navigation


Search



Second Navigation