Reglur um útflutning einkabíla frá Íslandi
Hyggur þú á ferð með bílinn til útlanda í sumar?
Við brottför þarf að framvísa leyfi til að fara til útlanda með bílinn. Leyfið er veitt hjá ráðgjöfum Ergo á Suðurlandsbraut 14, Reykjavík.
Reglur um útflutning bíla frá Íslandi
Meginreglan er að bílar sem eru fjármagnaðir af Ergo skulu notaðir á Íslandi. Aðeins er hægt að sækja um leyfi til að fara til útlanda með einkabíla. Allur útflutningur bíla er háður formlegu samþykki Ergo.
Skilyrði fyrir samþykki til útflutnings bíla er:
- Lánasamningur skal vera í skilum.
- 6 mánuðir séu liðnir frá gerð samnings eða yfirtöku, eða eigendaskiptum á skráðu félagi sem er lántaki að viðkomandi bifreið.
- Bíllinn skal vera ábyrgðar- og kaskótryggður, með græna kortið og þjófnaðartryggður meðan á dvöl erlendis stendur.
- Lántaki undirriti beiðni um útflutning þar sem fram kemur komu- og brottfarartími ásamt afritum af farmbréfi skipafélags.
- Staðfesting frá skipafélagi um að flutningskostnaður til og frá Íslandi sé greiddur.
- Lántaki gefi upp númer vegabréfs auk símanúmers, netfangi og heimilisfangi á ferðatíma.
- Verðmæti bíls og tegund getur komið til athugunar við mat á umsókn.
Athugið ofangreindar reglur gilda um ferðalög innan orlofstíma. Orlofstími er frá 15. maí til og með 30. ágúst. Aðrar reglur gilda um útflutning utan orlofstíma.
Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa hjá Ergo ef þú hyggst fara með tæki utan.
