Græn stefna

Ergo er leiðandi

ErgoErgo stefnir að því að vera leiðandi í grænni hugsun fjármálafyrirtækja á Íslandi. Leiðarljós okkar er að hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun. Við viljum vinna með þér að því að spara peninga, vernda umhverfið og efla þjóðarhag.

Reiknaðu með okkur

Ergo svarar kalli tímans um ábyrga lánastarfsemi, minni rekstrarkostnað og umhverfisvernd. Við bjóðum fólki hagkvæmari kjör á sparneytnum bílum, fræðslu um umhverfisvænar samgöngur og aðgang að reiknivélum Orkuseturs sem sýna svart á hvítu hvernig val á sparneytnum bíl getur sparað þér háar fjárhæðir.

Ergo ber ábyrgð

Við skiljum að hagsmunir umhverfis, samfélags og efnahags stangast ekki á heldur fara saman. Enginn er eins og fólk mun alltaf þurfa farartæki af mismunandi stærðum og gerðum. Hverjar sem þarfir þínar eru gerir Ergo það bæði auðveldara og ódýrara að velja hagkvæmasta kostinn hverju sinni. Nýr bílafloti er öruggari, sparar meira eldsneyti og dregur úr mengun okkur öllum til hagsbóta.

Í starfsemi okkar munum við:

  • Stunda ábyrga lánastarfsemi með farsælt og varanlegt samstarf í huga
  • Stuðla að hagkvæmari rekstri bifreiða og betri nýtingu eldsneytis með hagsmuni umhverfis, fyrirtækja og allra landsmanna að leiðarljósi
  • Hjálpa fólki að taka upplýsta ákvörðun um hvernig má draga úr rekstrarkostnaði bifreiða til framtíðar með vali á hagkvæmasta kostinum hverju sinni, sparakstri og góðu viðhaldi
  • Vinna að aukinni fræðslu um umhverfisvænar samgöngur og vekja sérstaka athygli á sparneytnustu bílum í boði
  • Vera til fyrirmyndar í umhverfismálum í eigin rekstri, bjóða pappírslaus viðskipti og fræða starfsfólk okkar um umhverfismál
  • Tryggja að Ergo verði fyrsti valkostur viðskiptavina sem gera kröfur um lægri lántöku- og rekstrarkostnað


Quick Navigation


Search



Second Navigation