Bílalán
Þú velur þér bíl eða ferðavagn, Ergo veitir lán fyrir kaupunum með veðskuldabréfi og þú ert skráður eigandi. Sem tryggingu fyrir láninu hefur Ergo fyrsta veðrétt í bílnum eða ferðavagninum út lánstímann.
Helstu kostir bílaláns
- Allt að 70% fjármögnun
- Lánstími allt að 7 ár
- Gull- og platinumhafar Ergo* fá afslátt af lántökugjöldum og betri vaxtakjör
- Ef þú kýst að skipta út bílnum eða ferðavagninum á lánstímanum getur þú sameinað eldra lán og nýtt eða fengið veðflutning**
- Það er hvorki umfram- né uppgreiðslugjald á bílalánum
*Gull- og platinumhafar Ergo eru annars vegar skilvísir viðskiptavinir Ergo og hins vegar skilvísir viðskiptavinir Íslandsbanka í gull- eða platinumvild.
**Veðflutningar eru alltaf háðir lánareglum Ergo.
Ekki er heimilt að gera breytingar, s.s. yfirtökur eða veðflutning, á þeim lánum sem þegar hafa verið endurútreiknuð.
