Endurútreikningur erlendra bílalána
Opnað hefur verið fyrir endurútreikninga.
Við viljum benda viðskiptavinum okkar á að hægt er að fá upplýsingar um stöðu endurútreikninga hjá starfsmönnum Ergo í síma 440-4000, með því að senda tölvupóst á ergo@ergo.is eða koma á skrifstofu okkar á Suðurlandsbraut 14, 2. hæð.
Niðurstöður vegna endurútreikninga verða kynntar í nokkrum áföngum:
1. Þeir aðilar sem eru enn með lán í gangi og voru greiðendur þess frá upphafsdegi fengu frest til að skoða endurútreikninginn til 21. nóvember. Þeir sem ekki nýttu sér auglýstan frest fengu senda endurútreikninga til sín ásamt nýju láni. Þeim lánum hefur nú verið breytt einhliða.
2. Endurútreikningar vegna uppgreiddra mála hjá þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem greiddu af láninu frá upphafsdegi þess og gerðu það upp við Ergo eru enn aðgengilegir á vef Ergo. Þetta á eingöngu við ef um ofgreiðslu er að ræða.
3a. Þeir aðilar sem eru með yfirtekin lán sem enn eru í gangi höfðu frest til 30. maí til að skoða endurútreikning. Þeir sem ekki nýttu sér auglýstan frest fengu senda endurútreikninga til sín ásamt nýju láni. Þeim lánum hefur nú verið breytt einhliða.
3b. Endurútreikningur vegna uppgreiddra yfirtekinna samninga verða áfram aðgengilegir á vef okkar. Þetta á eingöngu við ef um ofgreiðslu er að ræða. Lykilorð sem þarf til að geta skoðað endurútreikninginn hafa verið send í netbanka viðkomandi aðila. Uppgerðir samningar: Viðskiptavinur telst hafa greitt upp hafi samningur hans verið yfirtekinn af þriðja aðila (kaupanda bifreiðar). Aðrir samningar sem falla hér undir eru þeir sem greiddir voru upp eftir að yfirtaka átti sér stað.
Smelltu á hnappinn hér að neðan fyrir endurútreikning erlendra bílalána.
Endurútreikningur erlendra bílalána
